Rúnagaldur
Þýskir nasistar trúðu því að hinir norrænu æsir, Óðinn og Þór, hefðu haft yfir að ráða mögnuðum vopnum og töldu að í rústum týndra borga Gota í Evrópu mætti finna lykil að þessu forna leyndarmáli.
– Hvers vegna klæðist níræður Íslendingur einkennisbúningi hinna illræmdu SS-sveita Þriðja ríkisins áður en hann fremur sjálfsmorð?
– Hvers vegna grípa dularfullir menn til örþrifaráða til að afla upplýsinga um rannsóknir þýskra nasista á launhelgum Óðins og Þórs?
– Af hverju gera þeir Ísland að vettvangi skuggalegrar starfsemi sinnar?
Íslensk spennusaga af bestu gerð sem var einnig gefin út í Þýskalandi.